Vinir og keppinautar!

Þeir Andoni Iraola, Xabi Alonso framkvæmdastjóri Chelsea og framkvæmdastjóri Arsenal Mikel Arteta hafa verið vinir frá barnæsku. Nú reyna þeir að klekkja á hvor öðrum í ensku knattspyrnunni. Andoni sagði þetta um Xabi vin sinn fyrir leik Liverpool og Chelsea um daginn.
,,Núna vita allir að við erum nánir vinir. Við ólumst upp saman og spiluðum í sama liði. Við spiluðum líka á móti hvor öðrum. Við spiluðum svo saman í spænska landsliðinu og með liði Baskalands."

,,En þegar hann er mótherji okkar viljum við vinna. Hann er örugglega líka að hugsa það sama gagnvart okkur. En við spjöllum örugglega saman eftir leikinn. Hann er góður vinur minn og ég óska honum alls hins besta."
Allir þír eru fæddir í Baskalandi á norður Spáni. Þeir æfðu allir og spiluðu með litlu félagi, Antiguoko Kirol Elkartea, í San Sebastian. Magnað að þessir þrír hafi náð langt sem leikmenn og svo sem þjálfarar. Xabi og Mikel hafa til dæmis báðir gerð lið, Bayer Leverkusen og Arsenal, að landsmeisturum og bikarmeisturum. Vonandi nær Andoni að endurtaka leik vina sinna!
-
| Mummi
Miðasala á Liverpool leik -
| Sf. Gutt
Þurfum bara að mata hann! -
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni!

