Skemmtileg tilviljun!

Í gærkvöldi jafnaði Andrew Robertson landsleikjamet Skotlands. Svo skemmtilega vildi til að gamla metið var sett fjórum áratugum og einum degi áður.

Andrew Robertson spilaði í gærkvöldi, 13. nóvember, sinn 102. landsleik fyrir hönd Skotlands. Skotar unnu 2:1 sigur á Norður Makedóníu á Hampden Park í Glasgow. Andrew var líkt og síðustu ár fyrirliði Skotlands í leiknum og skilaði sínu vel.

Með því að spila 102. landsleik sinn jafnaði Andrew landsleikjamet Skotlands. Kenny Dalglish hefur átt metið í fjóra áratugi. Svo skemmtilega vill til að Kenny lék sinn 102. landsleik fyrir fjórum áratugum og einum degi. Hann spilaði sinn 102. og síðasta landsleik á móti Lúxenborg að kvöldi 12. nóvember 1986. Skotar unnu leikinn 3:0 á Hampden Park.
Verði Andrew leikfær slær hann landsleikjamet Kóngsins núna á mánudagskvöldið. Skotar mæta þá Sviss í St Gallen. Það verður söguleg stund í knattspyrnusögu Skotlands.
-
| Sf. Gutt
Conor fer bráðum að æfa -
| Sf. Gutt
Lygileg dómgæsla! -
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Frí í landsleikjum! -
| Sf. Gutt
Vopnahlésdagurinn -
| Mummi
Miðasala á Liverpool leik -
| Sf. Gutt
Vinir og keppinautar! -
| Sf. Gutt
Þurfum bara að mata hann! -
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni!

