| Sf. Gutt

Mohamed með landsliðsmarkamet!

Mohamed Salah er orðinn markahæsti landsliðsmaður í sögu egypska landsliðsins. Hann sló metið á föstudaginn þegar Egyptaland vann Malaví 5:0 í Kaíró  í forkeppni Afríkukeppninnar.

Mohamed er nú kominn með 70 landsliðsmörk í 124 landsleikjum. Gamla markametið, 69 mörk, átti Hossam Hassan fyrrverandi landsliðsþjálfari Egyptalands. 

Mohamed lék sinn fyrsta landsleik 3. september 2011 í 2:1 tapleik í Síerra Leóne. Hann spilaði þá með Al-Mokawloon. Mánuði seinna skoraði hann fyrsta landsliðsmark sitt þegar Egyptar unnu 3:0 sigur á Níger í Kaíró . 

Mohamed leikur nú, eins og allir vita með tyrkneska liðinu Trabzonspor. Hann hefur byrjað feril sinn þar stórvel og skorað 11 mörk í fyrstu 16 leikjum sínum.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan