| Sf. Gutt

Nýtt landsleikjamet!

Andrew Robertson setti í kvöld nýtt landsleikjamet fyrir Skotland þegar hann spilaði landsleik númer 103. Hann leiddi þá skoska landsliðið í Sviss. Heimamenn unnu öruggan sigur 4:0 svo ekki gátu Andrew og félagar hann fagnað sigri í þessum tímamótaleik. En nýtt landsleikjamet leit dagsins ljós og leiksins verður minnst fyrir það í knattspyrnusögu Skotlands.

Andrew Robertson lék sinn fyrsta aðallandsleik í Póllandi í mars 2014. Hann var meðal varamanna en kom inn á í síðari hálfleik. Skotar unnu 0:1. Hann var þá leikmaður Dundee United. 

Í leikjunum 103 hefur Andrew skorað fjögur mörk. Hann hefur leikið með Skotum í úrslitum þriggja stórmóta. Í Evrópukeppni landsliða 2020 og 2024. Hann lék svo í Heimsmeistarakeppninni núna í sumar. Enginn í sögunni hefur oftar verið fyrirliði Skotlands. Magnað afrek hjá frábærum leikmanni. Hér að neðan er listi yfir leikjahæstu leikmenn í sögu Skotlands.

Andrew Robertson 103 leikir.

Kenny Dalglish 102 leikir.

John McGinn 95 leikir.

Jim Leighton 91 leikur.

Craig Gordon 84 leikir.

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan