| Sf. Gutt

Frí í landsleikjum!

Tveir lykilmenn Liverpool hafa fengið leyfi í landsleikjahrotunni sem er framundan. Ástæðurnar fyrir því eru þó misjafnar. Um er að ræða þá Alisson Becker og Virgil van Dijk.

Carlo Ancelotti, landsliðsþjálfari Brasilíu, sagði að Alisson mætti sleppa landsleikjunum þar sem hann þyrfti ekki að sanna getu sína á neinn hátt. Alisson myndi svo koma inn í landsliðið þegar kemur að mikilvægari landsleikjum.

Virgil van Dijk hefur fundið fyrir meiðslum að undanförnu. Hann spilaði þó síðasta leik Liverpool þegar liðið vann Crystal Palace 1:3 á sunnudaginn. Virgil nær vonandi að ná sér heilum fyrir næsta leik Liverpool. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan