Jamie valinn maður fimmtu umferðar F.A. bikarsins
Jamie Carragher var valinn Maður fimmtu umferðar F.A. bikarsins í vefkosningu á heimasíðu Enska knattspyrnusambandsins. Eftir hverja umferð er valinn einn leikmaður sem þótt hefur skara framúr. Jamie átti stórleik í vörn Evrópumeistaranna gegn Manchester United þegar þeir afléttu áttatíu og fimm ára álögum og sló Rauðu djöflana úr keppninni. Jamie var tilnefndur ásamt fjórum öðrum leikmönnum. Hann hlaut yfirburðakosningu og fékk 59% atkvæða af þeim 28,757 atkvæðum sem greidd voru. Stuðningsmenn Liverpool voru hvattir til að kjósa Jamie á hinni opinberu heimasíðu Liverpool og eins á Liverpool.is. Það hefur nú munað um öll þau atkvæði sem skiluðu sér frá þessum vefsíðum!
Jamie fær viðurkenningu og frímiða á úrslitaleikinn. Þar verður hann og aðrir þeir sem hafa verið valdir í öðrum umferðum keppninnar kynntir fyrir áhorfednum í leikhléi. Reyndar ætlar Jamie sér örugglega að vera kynntur fyrir áhorfendum fyrir leikinn því hann vill sjálfur taka þátt í úrslitaleiknum! Hann fær auk þess 1.000 sterlingspunda vöruúttekt, frá íþróttavörframleiðandanum UMBRO, sem hann á að ráðstafa til einhvers góðs málefnis. Jamie var mjög vel að því kominn að vera valinn besti leikmaður þessarar umferðar og vonandi á hann eftir að vera í sigurliði í keppninni sjálfri í vor!
-
| Sf. Gutt
Einn eitt frábært Evrópukvöld! -
| Sf. Gutt
Stórgóð byrjun! -
| Sf. Gutt
Meistaradeildin að byrja -
| Sf. Gutt
Enn þokast Mohamed Salah upp listann! -
| Sf. Gutt
Cody Gakpo gerir nýjan samning! -
| Sf. Gutt
Meistaradeildarhópur Liverpool staðfestur! -
| Sf. Gutt
Fyrsta æfingin! -
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Af lánsmönnum -
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir