Liverpool og Man. Utd. með sameiginlega yfirlýsingu
Forsvarsmenn Liverpool og Man. Utd. hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu vegna atviks á laugardaginn þegar ráðist var að sjúkrabíl með Alan Smith, leikmann Man. Utd., innanborðs eftir leik liðanna á laugardag.
Alan Smith var á leið á sjúkrahús eftir að hafa meiðst hryllilega í leiknum en einhverjir sem kalla sig stuðningsmenn gátu ekki látið sjúkrabílinn í friði heldur réðust til atlögu þegar hann var á leið frá Anfield. Þetta hafði þó ekki áhrif á för sjúkrabílsins.
Í yfirlýsingunni segir: "Þetta fólk er ekki raunverulegir aðdáendur knattspyrnu. Bæði félögin eru þeirrar skoðunar að heimskulegar gjörðir nokkurra vitleysinga eigi ekki að skyggja á störf þeirra sem þátt tóku í að tryggja að Alan fengi bestu mögulegu meðferð eins fjótt og hægt er.
Manchester United vill einnig benda á að félagið er afar þakklátt fyrir snögga og góða hjálp frá öllu starfsfólki Liverpool."
-
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Mikið verk fyrir höndum! -
| Sf. Gutt
Drjúg leið að landi! -
| Sf. Gutt
Ronald Araujo fenginn að láni! -
| Sf. Gutt
Ég reyni að gera mitt besta! -
| Sf. Gutt
Þurfum að bæta margt! -
| Sf. Gutt
Mohamed Salah gengur til liðs við Trabzonspor! -
| Sf. Gutt
Rétt skef! -
| Sf. Gutt
Vill láta meira til sín taka! -
| Sf. Gutt
Nýr varabúningur vígður!

