Mitt sætasta mark hingað til
Peter Crouch segir að markið sem hann gerði gegn Everton í gærkvöldi sé það eftirminnilegasta sem hann hafi gert á ferlinum hingað til. Enda fátt sætara en að skora gegn Everton.
"Ég held að þetta sé sætasta mark sem ég hef skorað. Við vitum öll hvaða þýðingu þessi leikur hefur fyrir stuðningsmennina hér og því gaf það mér aukinn kraft að ná að skora fyrsta mark leiksins því að ég vissi að það væri þýðingarmikið. Ég er fullur sjálfstrausts þessa dagana og það er eðlilegt þegar maður er að skora reglulega. Þegar ég fékk tækifærið hikaði ég ekki við að nýta það. Það skemmdi ekki fyrir að þetta hjálpaði okkur að vinna góðan sigur undir erfiðum kringumstæðum. Það er aldrei auðvelt að vinna þennan grannaslag."
-
| Mummi
Miðasala á Liverpool leik -
| Sf. Gutt
Allt samkvæmt áætlun! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Verður leiknum frestað? -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Giovanni Leoni á enn eitthvað í land -
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu

