| Sf. Gutt

Allt samkvæmt áætlun!

Síðustu daga hafa stórviðri gegnið yfir Bretlandseyjar. Stormurinn Boelo herjar nú með roki og rigningu. Jafnvel var talið að fresta þyrfti leik Liverpool og Brighton and Hove Albion. 

Nú er ljóst að leikurinn fer fram samkvæmt áætlun. Flautað verður til leiks klukkan tvö núna eftir hádegið. Heimildarmaður minn í Liverpool borg segir að það sé býsna hvasst en að mestu þurrt. 

Nú verður Liverpool að sýna sitt besta til að vinna sigur. Liverpool hefur ekki unnið deildarleik á Anfield Road frá því í apríl á síðustu leiktíð!

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan