Af kvennaliðinu

Kvennaknattspyrnan er farin í gang á Englandi. Kvennalið Liverpool hefur byrjað nokkuð vel ef á heildina er litið. Núna stendur landsleikjahlé yfir.
Liverpool byrjaði keppnistímabilið, 6. september, á því að sækja Charlton Athletic heim til höfuðborgarinnar. Liverpool vann öruggan sigur 0:4 sem segja má að hafa verið óskabyrjun í deildinni.
Fyrsti heimaleikur Liverpool var gegn Tottenham Hotspur. Leiknum leik með jafnglími 1:1.
Síðasti deildarleikurinn í september var við Everton. Liverpool vann sætan sigur 2:0. Beata Olsen og Cornelia Kapocs skoruðu mörk Liverpool í byrjun og lok leiksins. Leikurinn fór fram á Anfield Road fyrir framan 9.642 áhorfendur. Kvennaliðið hefur oft verið í vandræðum á Anfield en nú gekk allt að óskum!
Fyrsti deildarleikur Liverpool í október var á útivelli við Manchester United. Heimakonur unnu nauman sigur 1:0.
Liverpool er í sjötta sæti í deildinni með sjö stig eftir fimm leiki. Manchester City er í efsta sæti. Liðið hefur unnið alla fimm leiki sína.
Liverpool hefur leikið tvo leiki í riðlakeppni Deildarbikarsins. Liverpool mætti fyrst Sunderland á heimavelli og vann 4:2. Sunderland er í næst efstu deild. Næst mætti Liverpool Birmingham City á útivelli. Það rigndi mörkum. Staðan var jöfn 3:3 þegar komið var fram viðbótartíma. Þegar fjórar mínútur voru liðnar af viðbótartímanum skoraði Natalia Ramos sigurmark Liverpool 4:3! Liverpool hefur því fullt hús stiga í Deildarbikarnum.
-
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Í minningu

