| Sf. Gutt

Merkur áfangi hjá fyrirliðanum!

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, náði merkum áfanga þegar Liverpool vann góðan útisigur 1:2 á Brentford í gær. Hann leiddi þá Liverpool til leiks í 200. sinn. Aðeins átta leikmenn hafa leitt Liverpool, sem fyrirliðar, 200 sinnum eða oftar. 

Virgil tók við sem opinber fyrirliði Liverpool sumarið 2023. Hann leiddi Liverpool fyrst sem fyrirliði haustið 2018. Virgil er líka fyrirliði Hollands. Hann hefur verið það frá því á útmánuðum 2018. Enginn hefur oftar verið fyrirliði Hollands.

Virgil kom til Liverpool 2018. Hann er búinn að spila 383 leiki með Liverpool í öllum keppnum. Hann hefur skorað 36 mörk og lagt upp 13. 

Hér að neðan er listi yfir þá leikmenn sem hafa verið fyrirliðar Liverpool 200 sinnum eða oftar. 

Steven Gerrard (470).

Ron Yeats (417).

Emlyn Hughes (335).

Donald MacKinlay (293).

Jordan Henderson (268).

Alex Raisbeck (267).

Sami Hyypia (204).

Virgil van Dijk (200).

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan