| Sf. Gutt

Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni!

Þrír lykilmenn Liverpool verða fjarri góðu gamni á morgun þegar Liverpool mætir Brighton. Einn er þó tiltækur á nýjan leik eftir leikbann.

Victor Munoz, Dominik Szoboszlai og Jeremie Frimpong verða ekki með vegna meiðsla. Dominik og Jeremie fóru báðir meiddir af velli á móti Brighton. Dominik hafði verið frá leikina á undan en því miður tóku meiðslin sig upp á nýjan leik. Jeremie kom inn sem varamaður en fór tognaður af velli um tíu mínútum seinna. 

Ryan Gravenberch getur verið með en hann tók út leikbann á móti Brentford. Hann spilaði með Liverpool í vikunni þegar Liverpool vann Villarreal 4:3 í Meistaradeildinni. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan