| Sf. Gutt

Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni!

Þrír af lykilmönnum Liverpool verða fjarri góðu gamni þegar Liverpool mætir LASK í Austurríki á morgun. Þeir komu allir meiddir úr landsleikjatörninni. 

Þessir þrír eru Cody Gakpo, Alexander Isak og Dominik Szoboszlai. Cody og Alexander náðu ekki að spila alla landsleikina því þeir meiddust á meðan landsleikjahrotan stóð yfir. Það kom svo í ljós þegar Dominik kom heim að hann var lítilsháttar meiddur. Þeir þrír misstu því allir af leik Liverpool og Manchester City á sunnudaginn sem City vann 0:3.

Það er bót í máli að meiðsli þeirra félaga eru ekki talin mjög slæm. Hugsanlegt er að einhverjir eða allir verði tilbúnir til leiks á laugardaginn þegar Liverpool mætir Brentford í London. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan