| Sf. Gutt

Mér líður mjög vel!

Florian Wirtz átti stórleik þegar Liverpool vann glæsilegan 4:0 sigur á Manchester United í gær. Hann skoraði ótrúlegt mark og lagði upp annað. Margir telja að þett hafi verið besti leikur þýska landsliðsmannsins frá því hann kom til Liverpool í fyrrasumar. Florian segir að honum líði mjög vel um þessar mundir. Hann hafði meðal annars þetta að segja eftir leikinn.   

,,Mér líður mjög vel. Ég held að það sé líka út af því að liðið er alltaf að ná betur saman og verða betra. Þegar svona þróun er í gangi verður maður sjálfur betri og maður nýtur sín."

,,Sigurinn í dag var mikilvægur. Líka út af því hvernig staðan er í deildinni. Ég held að mörg af liðunum sem eru í toppbaráttunni hafi ekki náð að vinna núna um helgina. Þess vegna er gott að við skyldum færa okkur þetta í nyt."

Florian átti lengst af erfitt uppdráttar á síðasta keppnistímabili. En hann hefur verið mun betri það sem af er þessarar. Hann er nú búinn að skora þrjú mörk og leggja upp fimm. Þar fyrir utan er hann búinn að vera frábær með þýska landsliðinu.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan