Landsleikjafréttir
Síðustu landsleikjahrotu ársins er lokið. Nú tekur við stíf dagskrá félagsliða. Eitt og annað sögulegt gerðist í hrotunni. Kannski aðallega hjá fyrrum leikmönnum Liverpool.

Bradley Barcola og Jeremy Jacquet voru í liðshópi Frakka. Báðir voru með á móti Ítölum í leik sem Frakkar töpuðu 3:1 á útivelli. Þeir félagar voru líka með Frökkum í leik á móti Tyrklandi. Sá leikur vannst 2:1.
Rio Ngumoha kom inn sem varamaður þegar England vann Króatíu 2:1 á Wembley. Hann kom ekki í sögu í seinni leiknum þegar enskir unnu frækilegan 2:3 útisigur á heimsmeisturum Spánverja. Victor Munoz var í liðshópi Spánverja en kom ekkert inn á. Harry Kane, sóknarmaður Bayern Munchen, setti nýtt landsleikjamet í fyrri leiknum. Hann lék þá sinn 126. landsleik. Markmaðurinn Peter Shilton átti gamla metið sem var 125 leikir.
Cody Gakpo og Kostas Tsimikas mættust í leik Hollands og Grikklands. Hollendingar unnu risasigur 7:0. Kostas spilaði líka í 1:0 sigri á Serbíu.
Florian Wirtz átti tvo frábæra landsleiki. Hann skoraði í 1:3 sigri Þjóðverja í Serbíu. Florian átti svo stórleik og skoraði tvö mörk þegar Þýskaland tók Holland í gegn 5:0 í Berlín. Þetta var 50. landsleikur Florian. Cody var í liði Hollands. Jürgen Klopp er greinilega byrjaður að ná takti með þýska landsliðið.
Dominik Szoboszlai og Milos Kerkez voru á ferðinni með ungverska landsliðinu. Dominik lagði upp mark í fyrri leiknum þegar Ungerjar unnu 0:2 í Georgíu. Giorgi Mamardashvili var í markinu hjá Georgíumönnum. Armin Pecsi var varamarkmaður hjá Ungverjum. Dominik og Milos spiluðu líka í 1:1 jafntefli við Norður Írland. Kieran Morrison kom inn sem varamaður hjá Norður Írum. Giorgi lék á móti Úkraínu.
Alexander Isak kom við sögu í öðrum af tveimur landsleikjum Svíþjóðar.
Lewis Koumas var í byrjunarliði Wales í Noregi. Wales tapaði 3:1. Hann kom svo inn sem varamaður þegar Wales tapaði aftur og nú heima 2:3 fyrir Portúgal. Danny Ward, fyrrum markmaður Liverpool lék sinn 50. landsleik. Hann spilar nú með Wrexham.

Alexis Mac Allister og Ronald Araujo mættust með sínum þjóðum í vináttuleik. Úrúgvæ vann 1:2 útisigur í Argentínu. Alexis skoraði í seinni leik Argentínu þegar liði burstaði Kosta Ríka 7:0. Ronald lék svo með Úrúgvæ þegar hans þjóð vann öruggan 5:0 sigur á Dóminíska lýðveldinu.
Kyle Kelly lék báða landsleiki Sankti Kitts og Nevis. Hann er lánsmaður hjá Forest Green Rovers.
Keyrol Figueroa tók þátt í báðum landsleikjum Hondúras. Hann er í láni hjá Port Vale.
Trey Nyoni lék í fyrsta sinn með undir 21. árs landsliði Englands.
-
| Mummi
Samstarf við Jóa Útherja -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Mohamed með landsliðsmarkamet! -
| Sf. Gutt
Nýtt landsleikjamet! -
| Sf. Gutt
Conor fer bráðum að æfa -
| Sf. Gutt
Skemmtileg tilviljun! -
| Sf. Gutt
Lygileg dómgæsla! -
| Sf. Gutt
Landsleikjafréttir -
| Sf. Gutt
Frí í landsleikjum! -
| Sf. Gutt
Vopnahlésdagurinn

