| Sf. Gutt

Allir vilja spila í þessum leikjum!

Liverpool og Manchester United leiða saman hesta sína á Anfield Road á morgun. Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, segir að allir vilji taka þátt í þeim leikjum.  

,,Sumir af eftirminnilegustu leikjum á ferli mínum hjá Liverpool hafa verið á móti Manchester United og ég hlakka til leiksins því andrúmsloftið verður eins og best gerist á Anfield. Allir vilja spila í þesum leikjum. Það þarf ekki að tíunda það sem snýr að sögunni og rígnum á milli félaganna. Ég veit að þið verðið jafn spennt og við leikmennirnir að vera á þessu sviði og leggja okkar af mörkum."

,,Það er ekki nokkur vafi á því að leikurinn verður erfiður. Við gerum okkur grein fyrir því að við erum að mæta liði með nýjan framkvæmdastjóra og liðið verður örugglega staðráðið í því að standa sig. Þess vegna verðum við að vera reiðubúnir að leggja geysilega hart að okkur. Öðruvísi munum við ekki ná þeim úrslitum sem við viljum öll ná!"

Liverpool hefur ekki unnið Manchester United á Anfield síðustu þrjá leiktíðir. Það er meira en næsta víst að það styttist í næsta sigur Rauða hersins!

 

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan