| Grétar Magnússon

Catalina er nýr heimavöllur Liverpoolklúbbsins!

Við hlökkum til að taka á móti ykkur á Catalinu í Kópavogi og hefja nýjan kafla með félagsmönnum Liverpoolklúbbsins á Íslandi!

Undanfarna viku hefur stjórn klúbbsins skoðað ýmsa staði á höfuðborgarsvæðinu og þökkum við öllum fyrir góðar móttökur. Það sem hreif okkur sérstaklega hjá Catalinu var metnaður nýrra eigenda og vilji þeirra til að gera vel við félagsmenn klúbbsins. Við hlökkum mikið til samstarfsins.

Nýir eigendur hafa þegar ráðist í endurbætur á staðnum og fleiri breytingar eru á döfinni. Markmiðið er að gera Catalinu að alvöru sportbar með góðri aðstöðu til að horfa á leiki, flottri stemningu og mat sem gefur tilefni til að mæta snemma!

Snorri Victor, fyrrverandi yfirmatreiðslumaður á VOX og gullverðlaunahafi með kokkalandsliðinu, er einn af nýjum eigendum Catalinu og mun sjá um að elda ofan í mannskapinn.

Félagskjör alla daga
Félagsmenn Liverpoolklúbbsins fá 20% afslátt af mat og drykk alla daga gegn framvísun félagsskírteinis. Á leikdögum verða einnig sérstök boltatilboð í boði.

Við byrjum af krafti á sunnudaginn — með 7–0 tilboði!

Leikurinn hefst kl. 16:30, en við hvetjum alla til að mæta tímanlega og taka þátt í upphituninni!
* Kjúklingavængir á 700 kr. gegn framvísun félagsskírteinis.
* 500 ml bjór á 700 kr. gegn framvísun félagsskírteinis.
* Barnaskammtur af samloku og frönskum á 700 kr.
* Frítt gos fyrir börn og fullorðna.

Sunnudagstilboðin eru sértilboð og 20% félagsafslátturinn leggst ekki ofan á þau.

Upphitun sem enginn vill missa af á sunnudaginn kemur.

Fyrir leik verður Kahoot með flottum vinningum og Erna Hrönn kemur okkur í rétta gírinn með okkar kæra You’ll Never Walk Alone og nokkrum vel völdum lögum.

Miðaleikurinn verður að sjálfsögðu á sínum stað, bæði venjulegi potturinn og gullpotturinn.

Fjölmennum á nýja heimavöllinn, tökum lagið saman og styðjum okkar menn!

Nýr staður, ný upplifun — sama gamla ástríðan fyrir Liverpool!


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan