| Sf. Gutt

Virgil van Dijk með 100 landsleiki!

Virgil van Dijk náði þeim merka áfanga á dögunum að spila sinn 100. landsleik fyrir Holland. Virgil er einn besti varnarmaður í sögu Liverpool og Hollands.

Virgil náði þessum áfanga þegar Hollendingar mættu Serbum í Eindhoven. Hollendingar höfðu sigur 2:1. Virgil leiddi liðið að venju og lék allan leikinn. Hann var hylltur af áhorfendum fyrir að hafa náð 100 landsleikjum. 

Virgil van Dijk lék sinn fyrsta aðallandsleik gegn Kasakstan í  október 2015. Holland vann 2:1. Hann var þá leikmaður Southampton. Í leikjunum 100 hefur Virgil skorað 14 mörk. Hann hefur leikið með Hollandi í úrslitum þriggja stórmóta. Í Heimsmeistarakeppninni 2022 og svo aftur núna í sumar. Hann var líka með hollenska liðinu í í Evrópukeppni landsliða 2024.

Ronald Koeman, sem var framkvæmdastjóri Southampton þegar Virgil lék með liðinu, skipaði hann fyrirliða Hollands árið 2018. Enginn í sögu hollenska landsliðsins hefur verið jafn oft fyrirliði og hann. 

Alls hafa 11 leikmenn náð að spila 100 landsleiki með Hollendingum. Leikjahæstur Hollendinga er Wesley Sneijder. Hann lék 134 landsleiki á ferli sínum! 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan