George Gillett látinn

George Nield Gillett yngri fæddist 22. október 1938 í Eau Claire í Wisconsin í Bandaríkjunum. Hann fékk snemma mikinn áhuga á íþróttum og 1966 hóf hann að fjárfesta í íþróttafélögum. Hann notaði peninga sem hann hafði aflað í viðskiptum óspart á þeim vettvangi næstu áratugi.

Í febrúar 2007 keyptu George og Tom Hicks, sem hafði líka fjárfest mikið í íþróttafélögum, Liverpool Football Club. Tími þeirra sem eigenda byrjaði kannski ekki sem verst en svo fór allt á versta veg. Bæði vegna mistaka og brasks þeirra með félagið en kreppa í fjármálaheiminum gerði þeim líka erfitt fyrir. Svo fór að haustið 2010 stefndi Liverpool F.C. í gjaldþrot. Þá kom Fenway Sports Group til bjargar með því að ná eignarhaldi á Liverpool Football Club fyrir dómstólum.
George Gillett lést 22. september síðastliðinn.
Hvíl í friði.
-
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson hylltur! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez orðinn góður! -
| Sf. Gutt
Alvaro Arbeloa á Anfield! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Tilkynnt um nýjan aðalstyrktaraðila!

