Liverpool kaupir ungan franskan framherja!

Liverpool keypti á dögunum ungan franskan framherja. Hann kemur ekki strax til Liverpool því hann var lánaður til liðs í heimlandi sínu.
Pilturinn heitir Djylian N'Guessan. Hann fæddist 3. ágúst 2008 í Saint-Nazaire í vesturhluta Frakklands. Faðir hans er franskur en móðir hans er frá Fínabeinsströndinni.
Djylian fór að æfa með unglingaliði Saint-Etienne. Hann komst í aðallið félagsins og spilaði fyrst með því á leiktíðinni 2024/25. Djylian lék alls 13 leiki með Saint-Etienne og skoraði eitt mark. Hann hefur spilað með undir 16, undir 17 og undir 20 ára landsliðum Frakklands. Í sumar var hann valinn í úrvalslið Evrópumóts undir 17 ára. Hann skoraði fjögur mörk á mótinu.
Liverpool tilkynnti um kaupin á Djylian í byrjun september. Talið er að Liverpool hafi borgað rúmlega fjórar milljónir sterlingspunda fyrir Frakkann.
Djylian N'Guessan kemur ekki strax til Liverpool. Hann var lánaður til Brest. Liðið leikur í efstu deild í Frakklandi.
-
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt!

