Alisson kominn upp í fjórða sæti!

Alisson Becker hélt marki sínu hreinu í 138. skipti á ferli sínum hjá Liverpool á móti Ipswich Town þegar Liverpool vann 0:2. Með því færðist hann upp í fjórða sæti yfir að halda markinu hreinu á markmannalista Liverpool. Alisson lék sinn 336. leik fyrir Liverpool gegn Ipswich.
Ray Clemence er langefstur á heildarlistanum. Hann hélt marki sínu 323 sinnum hreinu í 665 leikjum með Liverpool. Bruce Grobbelaar er annar á listanum með 267 skipti. Jore Reina hélt 177 sinnum hreinu og Alisson er nú kominn með 138 skipti eins og áður sagði. Hann fór uppfyrir goðsögnina Elisha Scott sem áður var í fjórða sætinu.
Hér að neðan er listinn yfir þá tíu markmenn Liverpool sem hafa oftast haldið hreinu.

Ray Clemence – 323

Bruce Grobbelaar – 267

Pepe Reina – 177
Alisson Becker – 138
Elisha Scott – 137
Tommy Lawrence – 133
David James – 102
Jerzy Dudek – 74
Arthur Riley – 69
Simon Mignolet – 65
-
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt!

