Af leikmannamálum

Liverpool hefur keypt einn leikmann það sem af er sumri. En forráðamenn félagsins hafa mikinn hug á öðrum leikmanni. Búið er að gera tilboð í hann.
Um er að ræða Yan Diomandé vinstri útherja þýska liðsins Red Bull Leipzig. Samkvæmt áreiðanlegum fjölmiðlum hefur Liverpool lagt fram tilboð upp í Yan en Leipzig hafnaði því. Sagt er að tilboðið hafi verið upp á 86 milljónir sterlingspunda. Hermt er að forráðamenn Liverpool séu tilbúnir að hækka tilboðið.
Liverpool hefur sýnt Andy Wharton, miðjumanni Crystal Palace, áhuga. Sagt er að forráðamenn Liverpool hafi sett sig í samband við umboðsmann Andy. Hann er búinn að spila með Palace frá 2024 en hann var áður hjá Blackburn Rovers.
Þýski miðvörðurinn Nico Schlotterbeck hefur verið nefndur til sögunnar. Hann spilar með Borussia Dortmund og er fastamaður í þýska landsliðinu.

Hingað til hefur Liverpool keypt einn leikmann. Það var auðvitað Victor Munoz sem Liverpool keypti frá spænska liðinu Osasuna fyrir 34,5 milljónir sterlingspunda.
-
| Sf. Gutt
Af HM -
| Sf. Gutt
Af HM -
| Sf. Gutt
Jérémy Jacquet orðinn leikmaður Liverpool! -
| Sf. Gutt
Harvey Elliott æfir af kappi! -
| Sf. Gutt
Kemur Jarrell aftur heim? -
| Sf. Gutt
Óvissa með Curtis Jones! -
| Sf. Gutt
Armin Pecsi kominn með landsleik -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konaté fer til Real Madrid! -
| Sf. Gutt
Nýi maðurinn strax meiddur! -
| Sf. Gutt
Leikjadagskráin birt

