Ibrahima Konaté fer til Real Madrid!

Staðfest hefur verið Ibrahima Konaté sé orðinn leikmaður Real Madrid. Þar hefur komið í ljós hvers konar leik hann og umboðsmaður hans hafa leikið síðustu mánuði. Eða hvað?
Í það minnsta var franski miðvörðurinn orðaður við Real Madrid fyrir nokkrum mánuðum. Reyndar var líka fjallað um meintan áhuga Paris Saint Germain. Mánuðirnir liðu og samningar náðust ekki milli Liverpool og Ibrahima. Rétt fyrir lok leiktíðar var talið að samningar myndu nást en svo varð ekki. Hermt var að ekki hefði náðst að semja um einhverjar bónusgreiðslur. Hvernig sem það var varð ekki af samningum og þar með gat Ibrahima gert samning við hvaða félag sem var án þess að Liverpool fengi svo mikið sem eitt sterlingspund. Félagið sem hann gekk svo til liðs við reyndist vera Real Madrid.
Nú verður svo sem aldrei vitað nákvæmlega hvernig málið var en margt bendir til þess að Ibrahima og Real hafi tekið sig saman um að láta samningin hans við Liverpool renna út án þess að nýr samningur yrði gerður. Real hefur áður leikið þennan leik og stuðningsmönnum Liverpool er í fersku minni hvernig viðskilnaður Trent Alexander-Arnold var í fyrra!
-
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir!

