| Sf. Gutt

Fyrir og eftir!

Liverpool gerði vel í að vinna útisigur í Bournemouth í síðasta leik fyrir landsleikjahlé. Athyglin beindist skiljanlega að Andoni Iraola fyrir og eftir leikinn. Hann var jú að stýra nýja liðinu sínu gegn því gamla rétt rúmum tveimur mánuðum eftir að hann tók við Liverpool.  

Fyrir leikinn sagði Andoni meðal annars þetta. ,,Persónulega hlakka ég mikið til að hitta alla aftur. Faðma leikmennina sem mér þykir svo gríðarlega vænt um. Starfsfólkið sem ég vann með og hef í hávegum. En á hinn bóginn og það er mikivægasta atriðið núna. Við þurfum að sækja liðið heim og vinna. Við verðum að vera eins grimmir og við getum. Svo spjöllum við saman eftir leikinn."

Andoni sagðist hafa fylgst náið með fyrsta Evrópuleik Bournemouth. Hann sagðist sannarlega hafa haldið með liðinu í leiknum. 

Liverpool vann 0:1 sigur í Bournemouth með marki Alexander Isak. Eftir leikinn sagði Andoni meðal annars þetta. 

,,Kom eitthvað á óvart? Það er sumt flottara hérna en var. Það er búið að hressa upp á búningsherbergin og líka aðstöðuna þar sem talað er við blaðamenn. Ég tók eftir að það er verið að byggja ný áhorfendastæði í hornum leikvangsins. Það er frábært að sjá þetta því ég elska þetta félag. Það er vöxtur í öllu hérna. Þið eigið eftir að njóta Evrópukvöldanna hérna og maður finnur spennu í loftinu. Leikvangurinn verður miklu flottari þegar framkvæmdunum lýkur. Ég veit hvað stendur til að gera. Það var alveg frábært að hitta svona margt af fólkinu hérna sem mér þykir svo undurvænt um."

Svo vann Liverpool leikinn þannig að endurkoma Andoni Iraola til Bournemouth gat ekki verið mikið betri!

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan