Andrew Robertson með 100 landsleiki!

Andrew Robertson náði þeim merka áfanga að spila sinn 100. landsleik fyrir Skotland. Aðeins einn leikmaður hefur leikið fleiri landsleiki fyrir Skota.
Andrew náði þessum áfanga þegar Skotar mættu Norður Makedóníu í Skopje. Skotar höfðu sigur 0:2. Andrew leiddi liðið að venju og lék allan leikinn. Honum var vel fagnað í leikslok af þeim sem fylgdu skoska landsliðinu þessa löngu leið.
Andrew Robertson lék sitt fyrsta aðallandsleik í Póllandi í mars 2014. Hann var meðal varamanna en kom inn á í síðari hálfleik. Skotar unnu 0:1. Hann var þá leikmaður Dundee United.

Í leikjunum 100 hefur Andrew skorað fjögur mörk. Hann hefur leikið með Skotum í úrslitum þriggja stórmóta. Í Evrópukeppni landsliða 2020 og 2024. Hann lék svo í Heimsmeistarakeppninni núna í sumar. Enginn í sögunni hefur oftar verið fyrirliði Skotlands.

Aðeins einn leikmaður hefur leikið fleiri leiki fyrir Skotland en Andrew. Það er enginn annar en Kenny Dalglish. Kóngurinn lék 102 landsleiki á ferli sínum!
-
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson hylltur!

