Leikjatilfærslur

Búið að er raða upp leikjum Liverpool í október. Það verður í mörg horn að líta eftir að landsleikjahléinu óralanga lýkur.

Fyrsti leikurinn í mánuðinum verður á Anfield Road við Manchester City sunnudaginn 11. október. Líkt og síðustu ár verður að telja leik liðanna með stórleikjum leiktíðarinnar.
Síðdegis miðvikudaginn 14. október leikur Liverpool gegn LASK í Austurríki. LASK vann bæði deild og bikar í heimalandi sínu á síðustu leiktíð. Flautað verður til leiks stundarfjórðung í fimm.
Laugardaginn 17. október mætir Liverpool Brentford á útivelli. Leikurinn verður á hefðbundnum leiktíma eða klukkan tvö eftir hádegið.
Þriðji leikur Meistaradeildarinnar verður klukkan sjö þriðjudagskvöldið 20. október. Spænska liðið Villarreal kemur þá í heimsókn á Anfield.

Sunnudaginn 25. október fer fyrsti leikur vetrarins fram en fyrsti vetrardagur er daginn áður. Brighton and Hove Albion kemur þá í heimsókn. Leikurinn hefst klukkan tvö.

Dagskrá mánaðarins hjá Liverpool lýkur miðvikudagskvöldið 28. þegar Xabi Alonso, fyrrum leikmaður Liverpool, kemur með nýja liðið sitt Chelsea til Liverpool. Leikurinn er í Deildarbikarnum. Vakin er athygli á því að þá verður vetrartími kominn á Englandi. Leikurinn byrjar því klukkan átta að íslenskum tíma.
Vakin er athygli á að tímasetningar eru að íslenskum tíma. Sumartími verður á Bretlandseyjum fram að síðustu helgi í mánuðinum. Þá tekur við vetrartími sem þýðir að sami tími er á Íslandi og Bretlandi.
-
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn

