| Grétar Magnússon

Stefan Bajcetic seldur til Celta Vigo

Hinn 21 árs gamli Spánverji Stefan Bajcetic hefur verið seldur til síns gamla félags, Celta Vigo.

Bajcetic var keyptur til Liverpool í febrúar árið 2021 og vakti fljótlega athygli innan félagsins fyrir góðar frammistöður í Akademíunni. Hann kom inná í sínum fyrsta leik fyrir félagið í 9-0 sigri á Bournemouth í ágúst 2022, þá aðeins 17 ára gamall.

Hans fyrsta mark kom svo á annan dag jóla þetta sama ár þegar 1-3 sigur vannst á Aston Villa á útivelli. Alls tók Bajcetic þátt í 19 leikjum það tímabilið.

En því miður hafa meiðsli sett strik í reikninginn síðustu ár t.a.m. spilaði hann aðeins þrjá leiki á tímabilinu 2023-24. Hann var svo lánaður út tímabilið á eftir og náði að spila alls 33 leiki með Red Bull Salzburg og Las Palmas. En á síðasta tímabili spilaði hann hreinlega ekki neitt útaf meiðslum.

Hann var þó tilbúinn í slaginn í vor og mætti snemma til æfinga á undirbúningstímabilinu. Það var hinsvegar nokkuð ljóst að dagar hans hjá Liverpool voru taldir og nú hefur hans gamla félag keypt hann á ný.

Við óskum Stefan góðs gengis á Spáni.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan