| Grétar Magnússon

Gluggadagur - hvað er títt?

Í kvöld lokast félagaskiptaglugginn í Evrópu. Eins og flestir vita hefur Liverpool gengið frá sínum málum að mestu.

Bradley Barcola var tilkynntur í gær (mánudaginn 31. ágúst) og félagið reyndi mikið að semja við Crystal Palace um Ismaila Sarr og Brighton um Yankuba Minteh til að kaupa annan hvorn þeirra. Lítið gekk í þeim viðræðum sem varð til þess að Cody Gakpo fór ekki neitt, það skal þó tekið fram að glugginn er enn opinn þegar þetta er skrifað og allt getur gerst. Orðrómur hafði verið ansi hávær um að Gakpo yrði seldur til Manchester City um leið og Liverpool festi kaup á öðrum kantmanni eftir Barcola kaupin.

Það er kannski ágætt að hlutirnir fóru eins og þeir fóru en mörgum finnst nú að ýmis vandamál í leikmannahóp liðsins hafi ekki verið löguð. Við skulum ekkert fjölyrða um það hér en rennum yfir það helsta sem hefur gerst í dag hjá Liverpool.

Eins og við sögðum frá fyrr í dag var Stefan Bajcetic seldur til Celta Vigo á Spáni.

Keyrol Figueroa, sem er 20 ára gamall sóknarmaður, var lánaður til Port Vale sem leika í League Two á Englandi.

Harvey Elliott var lánaður til spænska félagsins Valencia út tímabilið.

Undir kvöld var svo tilkynnt um kaup á ungum markverði, Lucca Brughmans frá belgíska félaginu Genk.

Brughmans, sem er 18 ára gamall, verður á láni hjá Genk út tímabilið og þykir einn efnilegasti markvörður Evrópu um þessar mundir. Hann hefur spilað fyrir aðallið Genk síðan í apríl á þessu ári og á tímabilinu sem er nýhafið hefur hann spilað alla fjóra leikina í deild til þessa.

Hann er fyrlrliði U-19 ára landsliðs Belga og var einnig fyrirliði U-17 ára liðsins þar áður.

Brughmans hafði þetta að segja þegar kaupin voru tilkynnt: ,,Ég er mjög ánægður og þakklátur. Þetta er risastórt skref og ótrúlegt tækifæri. Ég er stoltur, spenntur og hlakka til komandi tíma hjá þessu sögufræga félagi, draumur minn er að klæðast markmannstreyju félagsins einn daginn og spila á Anfield."

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan