Leikjatilfærslur

Búið að er raða upp leikjum Liverpool í september. Liverpool byrjar þá keppni í Meistaradeildinni og Deildarbikarnum. Þar með má segja að kepnnistímabilið sé komið í fullan gang.
Fyrsti leikur Liverpool í mánuðinum verður á útivelli á móti Ipswich Town. Leikurinn hefst klukkan sjö að kvöldi föstudagsins 4. september.

Á sama tíma miðvikudagskvöldið 9. september byrjar Liverpool að spila í Meistaradeildinni. Spænska liðið Atletico Madrid kemur þá í heimsókn á Anfield Road.

Laugardaginn 12. september spilar Liverpool aftur á Anfield. Fulham verður mótherjinn. Leikurinn byrjar klukkan tvö eftir hádegi. Sem sagt hefðbundinn leiktími. Álvaro Arbeloa kemur þá með Fulham á völlinn þar sem hann lék svo oft sem leikmaður Liverpool. Hann tók við sem framkvæmdastjóri Fulham í sumar.

Þriðji leikur Liverpool í röð á Anfield fer fram þriðjudagskvöldið 15. september. Liverpool fær þá Tottenham Hotspur í heimsókn í Deildarbikarnum. Leikurinn hefst klukkan sjö.
Sunnudaginn 20. september heldur Andoni Iraola á fornar slóðir með Rauða herinn. Spánverjinn mætir þá með Liverpool á sinn gamla heimavöll í Bournemouth. Flautað verður til leiks klukkan eitt eftir hádegi.
Eftir þann leik tekur við landsleikjahlé og Liverpool spilar ekki aftur fyrr en 11. október. Landsleikjahléin verða nú lengri en áður en á móti kemur að þau verða færri.
Vakin er athygli á að tímasetningar eru að íslenskum tíma. Sumartími er á Bretlandsleyjum. Klukkan þar á sumartíma er klukkustund á undan íslenskum tíma.
-
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt!

