| Grétar Magnússon

Barcola staðfestur

Franski framherjinn Bradley Barcola var staðfestur sem leikmaður Liverpool í dag. Hann kemur frá PSG í Frakklandi og hefur skrifað undir langtíma samning við félagið.

Barcola verður númer 29 og sagði í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins:  ,,Ég er mjög stoltur að geta spilað fyrir Liverpool, ég er í skýjunum. Þetta tók langan tíma en í dag er ég glaður og það eina sem ég vil núna er að komast út á völlinn og spila fyrir félagið. Ég vonast til að áorka miklu hér, fyrsta markmið er að vinna ensku deildina, það er minn stærsti draumur."

,,Það er fyrsta markmiðið og að vera hér lengi, þess vegna samdi ég til langs tíma og ég vona að ég geti uppfyllt markmið mín hér."

Barcola er stórt nafn í knattspyrnuheiminum og kemur til félagsins eftir þriggja ára veru í Parísarborg hjá PSG þar sem hann spilaði 152 leiki, skoraði 39 mörk og átti 35 stoðsendingar. Hjá félaginu varð hann Frakklandsmeistari þrjú ár í röð og síðustu tvö ár hefur félagið svo unnið Meistaradeildina eins og við þekkjum.

Barcola hóf ferilinn hjá Lyon þar sem hann spilaði sinn fyrsta leik árið 2021, alls urðu leikirnir 47 með 7 mörk og 11 stoðsendingar áður en PSG festi kaup á honum árið 2023.

Hann hefur spilað 28 leiki fyrir franska landsliðið, fyrsti landsleikur hans var í júní 2024 og alls eru mörkin til þessa sex talsins. Frakkar enduðu í fjórða sæti HM í sumar þar sem Barcola skoraði þrjú mörk.

,,Ég hef tvisvar fengið tækifæri til að spila á þessum leikvangi (Anfield) og ég upplifði andrúmsloftið og hvernig stuðningsmennirnir fylkja sér á bakvið leikmennina. Þegar ég frétti af áhuga Liverpool á mér spurði ég engra spurninga þar sem ég vissi að þetta væri mjög stórt og gott félag fyrir mig."


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan