| Sf. Gutt

Rio Ngumoha setur nýtt met!

Rio Ngumoha setti nýtt félagsmet í gær þegar hann skoraði fyrra mark Liverpool í 2:0 sigri á Fulham á Anfield Road. Metið fólst í því að hann með markinu varð hann yngstur leikmanna Liverpool til að skora deildarmark á Anfield.

Rio var 17 ára og 225 daga gamall þegar hann skoraði gegn Fulham. Gamla metið átti Raheem Sterling. Hann skoraði í 1:0 sigri Liverpool á Reading í október 2012. Hér að neðan er listi yfir þá þrjá yngstu sem hafa skorað deildarmark á Anfield.

Rio Ngumoha 17 ára og 225 daga gamall. Liverpool:Fulham 2:0, 11. apríl 2016.

Raheem Sterling 17 ára og 317 daga gamall. Liverpool:Reading 1:0, 20. október 2012.

Jimmy Melia 18 ára og 46 daga gamall. Liverpool:Nottingham Forest, 17. desember 1955. 

 

Jimmy varð Englandsmeistari með Liverpool 1963/64 og átti farsælan feril hjá félaginu. Raheem fór of snemma frá Liverpool til að teljast með merkum leikmönnum Liverpool. Hann átti glæsilegan feril með Manchester City. Nú er að sjá hversu langt Rio nær.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan