Leikjatilfærslur

Búið er að tímasetja leiki Liverpool núna í apríl. Hér er listi leikjanna með nýjum tímasetningum. Gott að vita þetta ef verið er að velta ferðalögum fyrir sér.

Leikur tvö fer fram í París á miðvikudagskvöldið. Liverpool mætir þá Evrópumeisturum Paris Saint Germain klukkan átta. Þetta er fyrri leikur liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Eins og allir muna mættust liðin á síðustu leiktíð. Liverpool vann þá í Frakklandi en franska liðið svaraði með sigri á Englandi. Paris fór svo áfram í vítaspyrnukeppni.
Laugardaginn 11. apríl fær Liverpool Fulham í heimsókn á Anfield Road. Leikurinn hefst klukkan hálf fimm síðdegis.

Seinni leikur Liverpool og Paris Saint Germain í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar fer fram að kvöldi þriðjudagsins 14. apríl. Flautað verður til leiks klukkan átta. Þá ræðst hvort liðið fer í undanúrslit!

Sunnudaginn 19. apríl fer fram sögulegur leikur í Liverpool borg. Liverpool liðin mætast þá í fyrsta sinn á nýja heimavelli Everton. Borgarrimman hefst klukkan eitt eftir hádegi.

Síðasti leikurinn í apríl fer fram á Anfield. Englandsmeistarar Liverpool mæta þá bikarmeisturum Crystal Palace klukkan tvö. Hingað til hafa liðin þrívegis gengið á hólm á leiktíðinni. Liverpool hefur enn ekki unnið. Tími til kominn!
Allar tímasetningar eru að íslenskum tíma. Hafa ber í huga að nú er kominn sumartími á Bretlandseyjum. Þá er enski tíminn klukkutíma á undan okkar tíma.
-
| Sf. Gutt
Gleðilega páska! -
| Sf. Gutt
Stórleikur í Manchester! -
| Sf. Gutt
Arne Slot er undir pressu! -
| Sf. Gutt
Óvíst með Ibrahima Konaté -
| Sf. Gutt
Það er alltaf pressa hjá Liverpool! -
| Sf. Gutt
Alisson meiddur -
| Sf. Gutt
Jürgen Klopp lítur við heima! -
| Sf. Gutt
Liverpool mætir Evrópumeisturunum! -
| Sf. Gutt
Allt eða ekkert! -
| Sf. Gutt
Bara stuðningsmenn Liverpool!







