Ryan Gravenberch gerir nýjan samning!

Ryan Gravenberch gerði í gær nýjan samning við Liverpool. Hollendingurinn gerir samninginn til næstu ára. Hann kom til Liverpool í septmeber 2023 frá Bayern Munchen.

Honum gekk ekki of vel að festa sig í sessi á fyrstu leiktíð sinni hjá Liverpool. En á síðustu leiktíð, meistaraleiktíðinni, var hann með allra bestu leikmönnum Liverpool. Hann spilaði þá aftarlega á miðjunni og kom sú færsla á honum aftur á völlinn stórvel út. Það er sannarlega gleðiefni að hann sé búinn að ákveða að framlengja samning sinn við Liverpool.
Ryan er nú búinn að spila 123 leiki með Liverpool. Hann hefur skorað átta mörk og lagt upp 12. Hann varð Deildarbikarmeistari 2024 og Englandsmeistari á síðasta keppnistímabili.
-
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly -
| Sf. Gutt
George Gillett látinn -
| Sf. Gutt
Fyrir og eftir!

