| Sf. Gutt

Leikjatilfærslur

Búið er að tímasetja leiki Liverpool í öðrum mánuði ársins. Hér er listi leikjanna með nýjum tímasetningum. Gott að vita þetta ef verið að velta ferðalögum fyrir sér.

Fyrsti leikur mánaðarins fer fram á Anfield Road sunnudaginn 8. febrúar. Liverpool fær þá Manchester City í heimsókn. Leikurinn hefst klukkan hálf fimm.

Leikur tvö fer fram miðvikudagskvöldið 11. febrúar. Liverpool fer þá til norður til Sunderland og mætir þar heimamönnum. Leikurinn byrjar stundarfjórðung yfir átta.

Laugardagskvöldið 14. febrúar fer fram leikur Liverpool og Brighton and Hove Albion í 4. umferð FA bikarsins. Flautað verður til leiks klukkan átta.

Sunnudaginn 22. febrúar leiða Nottingham Forest og Liverpool saman hesta sína í Nottingham. Leikar hefjast klukkan tvö eftir hádegi.

Fimmti og síðast leikur febrúar verður á Anfield þegar Liverpool tekur á móti West Ham United. Leikurinn er á hefðbundnum leiktíma eða klukkan þrjú. 

Allar tímasetningar eru að íslenskum og breskum tíma. Sami tími er á þessum eyjum yfir háveturinn.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan