| Sf. Gutt

Jeremy Jacquet kemur til Liverpool!

Franski varnarmaðurinn Jeremy Jacquet gengur til liðs við Liverpool frá Rennes í sumar. Talið er að Liverpool borgi um 60 milljónir sterlingspunda fyrir þennan efnilega miðvörð.

Jeremy er fæddur 13. júlí 2005. Hann er uppalinn hjá franska liðinu Rennes og lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu í janúar fyrir tveimur árum. Jeremy var um tíma í láni hjá Clermont Foot.

Jeremy þykir með allra efnilegustu miðvörðum Frakklands. Hann hefur leikið með yngri landsliðum Frakka og nú síðast með undir 21. árs liðinu. Árið 2024 var hann valinn í úrvalslið Evrópumóts landsliða undir 19 ára. 

Jeremy Jacquet lýkur yfirstandandi leiktíð með Rennes. Haft var eftir honum að hann vildi ljúka leiktíðinni með því að hjálpa uppeldisfélagi sínu sem þakklæti fyrir gott uppeldi. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan