Hvað gerist? - Uppfært í dag og fram á kvöld!
.jpg)
Í kvöld verður lokað fyrir félagskipti knattspyrnumanna. Eins og vant er verður fylgst grannt með gangi mála hér á Liverpool.is.
11:00. Talið er að Liverpool muni borga Rennes um 60 milljónir sterlingspunda fyrir Jeremy. Reiknað er með því að hann fari í læknisskoðun í dag.
10:00. Tottenham Hotspur og Liverpool voru í síðustu viku í viðræðum um vistaskipti Andrew Robertson. Ekki er alveg vitað um hversu langt þær viðræður voru komnar. Ekkert verður af þessum vistaskiptum því Liverpool vill ekki missa Andrew. Reyndar var furðulegt að Liverpool gæfi yfirleitt kost á að Andrew færi frá félaginu.
09:00. Liverpool og franska liðið Rennes hafa svo til náð samkomulagi um kaup á varnarmanninum Jeremy Jacquet. Jeremy er tvítugur miðvörður. Hann þykir mikið efni og hefur spilað með yngri landsliðum Frakklands. Rennes vill ekki láta hann frá sér fyrir í sumar og þar við situr. Ekkert hefur verið tilkynnt opinberlega um málið af félögunum.
08:00. Í gærkvöldi var Lutsharel Geertruida, sem er hollenskur varnarmaður, orðaður við Liverpool. Lutsharel, er miðvörður, er leikmaður RB Leipzig en er í láni hjá Sunderland. Liverpool vildi breyta láninu þannig að hann losnaði frá Sunderland og spilaði með Liverpool til vors. Ekki náðist samkomulag um þetta.
07:00. Ekki er líklegt að mikið gerst í innkaupum eða brottförum í dag. Þó bárust fréttir í gærkvöldi um að nýr maður sé á leiðinni.
-
| Sf. Gutt
Ibrahima kominn heim! -
| Sf. Gutt
Fjögur lið í boði! -
| Sf. Gutt
Stórsigur og öruggt áframhald! -
| Sf. Gutt
Einn miðvörður til taks! -
| Sf. Gutt
Svona er staðan! -
| Sf. Gutt
Sorgarfréttir -
| Sf. Gutt
Góð uppskera suður við Miðjarðarhaf! -
| Sf. Gutt
Mohamed kominn til baka! -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Af Afríkukeppninni

