Meiðslafréttir

Tveir leikmenn Liverpool komu meiddir heim úr landsleikjahrotunni. Um er að ræða þá Conor Bradley og Florian Wirtz. Conor verður frá um ófyrirséðan tíma en Florian gæti orðið leikfær strax í næstu viku.
Fjarvera Conor kemur á versta tíma því Jeremie Frimpong verður líka í burtu næstu vikurnar. Hann er búinn að vera meiddur um nokkurt skeið. Liverpool hefur þar með engan leikmann tiltækan sem talist getur eiginlegur hægri bakvörður. Þeir Dominik Szoboszlai, Curtis Jones og Joe Gomez koma kannski helst til álita í þá stöðu. Reyndar er mjög slæmt að þurfa að nota Dominik sem hægri bakvörð því hann er lykilmaður á miðjunni.

Það er þó ein góð frétt varðandi meiðsli úr herbúðum Liverpool. Alisson Becker hefur verið að æfa upp á síðkastið og verður trúlega til taks á morgun þegar Nottingham Forest kemur í heimsókn á Anfield Road. Hann er búinn að vera meiddur frá því í september. Þó Giorgi Mamardashvili sé búinn að standa sig vel í fjarveru Alisson er ekki vafi að Brasilíumaðurinn er betri markmaður.

Við þetta má bæta að Alexander Isak er leikfær. Hann var það reyndar fyrir landsleikjahlé og var valinn í sænska landsliðið en tók aðeins þátt í öðrum landsleiknum af tveimur. Hann kom inn sem varamaður í þeim leik. Hann var á varamannabekk Liverpool í leiknum á móti Manchester City. Vonandi fer Alexander að komast í gang!
-
| Mummi
Árshátíð Liverpoolklúbbsins 2026! -
| Sf. Gutt
Nýtt félagsmet! -
| Sf. Gutt
Wataru Endo fór í aðgerð -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Mummi
Liverpool páskaegg -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Mummi
Kenny Dalglish! Sérstök viðhafnarsýning -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz er ekki í lagi! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Sf. Gutt
James efstur á blaði!


