Alexander Isak keyptur fyrir metfé!

Sögunni endalausu lauk þegar Newcastle United tók mettilboði Liverpool í sænska sóknarmanninn Alexander Isak. Hann er nú dýrasti leikmaður í sögu Liverpool og reyndar ensku knattspyrnunnar frá upphafi vega.
Liverpool bauð 110 milljónir sterlingspunda í Alexander Isak fyrr í sumar. Forráðamenn Newcastle höfnuðu tilboðinu. Seint í gærkvöldi spurðust út fréttir þess efnis að Liverpool hefði hækkað tilboðið um 15 milljónir. Newcastle tók tilboðinu. BBC og fleiri áreiðanlegir fjölmiðlar segja upphæðina geta hækkað upp í 130 milljónir ef ákvæði í samningnum virkjast á samningstímanum sem er sex ár.
Með kaupunum sló Liverpool eigið kaupmet. Fyrr í sumar keypti Liverpool Þjóðverjann Florian Wirtz frá Bayer Leverkusen fyrir 100 milljónir punda. Sú upphæð hækkar um 16 og hálfa milljón að uppfylltum ákvæðum í kaupsamningnum.
Upphæðin sem Liverpool borgar fyrir Alexander er gríðarlega há. Vonandi nær hann að finna sig hjá Liverpool og skila sínu. Við sjáum hvað setur og vonum það besta!
-
| Sf. Gutt
Anfield á eftir að hafa mikla þýðingu! -
| Sf. Gutt
Rio Ngumoha setur nýtt met! -
| Sf. Gutt
Alexander Isak loksins kominn til leiks! -
| Sf. Gutt
Í undanúrslit! -
| Sf. Gutt
Gleðilega páska! -
| Sf. Gutt
Stórleikur í Manchester! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Arne Slot er undir pressu! -
| Sf. Gutt
Óvíst með Ibrahima Konaté -
| Sf. Gutt
Það er alltaf pressa hjá Liverpool!


