Af EM

Evrópukeppni landsliða kvenna lauk í Sviss á sunnudaginn. England varði titil sinn eftir sigur á Spáni í vítaspyrnukeppni. Eftir framlengingu var staðan 1:1. England vann svo 3:2 í vítaspyrnukeppni.
Tvær í meistaraliðinu léku áður með Liverpool. Um er að ræða þær Lucy Bronze og Niamh Charles. Lucy lék með Liverpool frá 2013 til 2014. Niamh var á mála hjá Liverpool frá 2016 til 2020. Báðar spila nú með meistaraliði Chelsea.
Niamh er frá Liverpool. Hún æfði með Liverpool frá unga aldri. Hún tók eitt af vítum Englands í vítakeppninni og skoraði úr sinni spyrnu. Lucy varð Englandsmeistari með Liverpool 2013 og 2014.
Liverpool átti tvo fulltrúa á mótinu. Þær Gemma Evans og Ceri Holland voru í liði Wales. Báðar léku alla þrjá leiki Wales á mótinu. Wales tapaði leikjum sínum en liðið var í erfiðum riðli með Englandi, Frakklandi og Hollandi.
-
| Sf. Gutt
Af HM -
| Sf. Gutt
Af HM -
| Sf. Gutt
Jérémy Jacquet orðinn leikmaður Liverpool! -
| Sf. Gutt
Harvey Elliott æfir af kappi! -
| Sf. Gutt
Kemur Jarrell aftur heim? -
| Sf. Gutt
Óvissa með Curtis Jones! -
| Sf. Gutt
Armin Pecsi kominn með landsleik -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konaté fer til Real Madrid! -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Nýi maðurinn strax meiddur!

