Landsleikjafréttir

Þjóðadeildinni lauk í Þýskalandi í gærkvöldi. Einn af Englandsmeisturum Liverpool bætti í verðlaunasafn sitt með því að vera í sigurliði keppninnar.
Portúgal og Spánn léku til úrslita. Portúgalir komust í úrslit eftir 1:2 sigur á heimamönnum. Þjóðverjar komust yfir en Portúgal sneri leiknum sér í hag. Diogo Jota kom inn á sem varamaður. Spánn tryggði úrslitasæti sitt með 5:4 sigri á Frakklandi. Ibrahima Konaté var í hjarta varnar Frakka.
Martin Zubimendi kom Evrópumeisturum Spánar yfir í úrslitaleiknum í Munchen en Nuno Mendes jafnaði litlu síðar fyrir Portúgal. Mikel Oyarzabal náði aftur forystu fyrir Spán í blálok fyrri hálfleik. Cristiano Ronaldo jafnaði 2:2 í síðari hálfleik og þannig lauk leiknum. Ekkert var skorað í framlengingu. Portúgal hafði betur 5:3 í vítaspyrnukeppninni sem fylgdi. Diogo Jota kom inn sem varamaður í framlengingunni og jók þar með verðlaunasafn sitt á þessu ári.
Frakkar unnu bronsið með því að leggja Þjóðverja að velli 0:2. Ibrahima var á bekknum allan tímann.

Þetta var fjórða keppni Þjóðadeildarinnar. Portúgal vann í annað sinn en þjóðin vann fyrstu keppnina árið 2019. Frakkland vann keppnina 2021 og Spánn 2023. Diogo var í liðshópi Portúgal 2019 en spilaði ekkert. Hann hafði þá ekki enn leikið sinn fyrsta landsleik.
-
| Mummi
Árshátíð Liverpoolklúbbsins 2026! -
| Sf. Gutt
Ryan Gravenberch gerir nýjan samning! -
| Sf. Gutt
Nýtt félagsmet! -
| Sf. Gutt
Wataru Endo fór í aðgerð -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Mummi
Liverpool páskaegg -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Mummi
Kenny Dalglish! Sérstök viðhafnarsýning -
| Sf. Gutt
Florian Wirtz er ekki í lagi! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni


