Ný félagsmet!

Þegar Liverpool mætti PSV Eindhoven á síðasta keppnistímabili komust þrír leikmenn metabækur í Liverpool Football Club. Allir þrír slóu met hvað ungan aldur varðaði.
Trey Nyoni varð yngsti leikmaður í sögu Liverpool til að spila í Evrópukeppni. Hann var 17 ára, sex mánaða og 30 daga gamall. Phil Charnock átti gamla metið. Hann var 17 ára og 215 daga gamall þegar hann spilaði með Liverpool í 6:1 sigri á Apollon Limassol 16. september 1992.

Jayden Danns var í byrjunarliði Liverpool. Hann varð þar með yngsti leikmaður Liverpool til að byrja leik í Meistaradeildinni.

Amara Nallo varð yngsti leikmaður í sögu Liverpool til að verða rekinn af leikvelli. Hann var aðeins 18 ára og 73 daga gamall. Amara kom inná á 83. mínútu og á 87. mínútu fékk hann beint rautt fyrir að brjóta á leikmanni PSV sem var sloppinn í gegn. Fyrra metið átti Michael Owen. Hann var 18 ára og 117 daga gamall þegar hann fékk að líta rauða spjaldið í leik Liverpool og Manchester United í apríl 1998. Leiknum lauk 1:1 á Old Trafford.
-
| Sf. Gutt
Merkur áfangi hjá fyrirliðanum! -
| Sf. Gutt
Draumar geta orðið að veruleika! -
| Sf. Gutt
Þrír lykilmenn fjarri góðu gamni! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Hann kenndi mér mjög margt! -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson með 100 landsleiki! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Tveir komnir fyrr heim! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bill Shankly

