| Sf. Gutt

Curtis kom Liverpool á toppinn!

Liverpool náði efsta sætinu í deildinni þegar liðið lagði Chelsea að velli 2:1 á Anfield Road nú síðdegis í dag. Sigurinn var harðsóttur en það eru alltaf sætir sigrar. 

Caoimhin Kelleher var valinn í markið. Alisson Becler var auðvitað frá eftir að hafa meiðst aftan í læri í síðasta leik fyrir landsleikjahlé.

Fyrir leikinn var minning Peter Cormack heiðruð og leikmenn liðanna léku með sorgarbönd. Peter, sem lék með Liverpool frá 1972 til 1976 lést 10. október síðastliðinn.

Liðin fóru varlega til að byrja með en það var hart barist úti um allan völl. Liverpool náði forystu á 29. mínútu. Brotið var á Curtis Jones inni í teig og dómarinn dæmdi víti. Mohamed Salah tók vítið og sendi Robert Sánchez í rangt horn! Rétt á eftir varð Diogo Jota að fara af velli vegna meiðsla. Tosin Adarabioyo hafði brotið á Diogo snemma leiks þegar hann var að sleppa einn í gegn. Reyndar hefði Tosin átt að fá rautt en ekki gult fyrir brotið. 

Fimm mínútum var bætt við fyrri hálfleik. Þegar aðeins var liðið á viðbótartímann var dæmt víti á markmann Chelsea eftir að hann sópaði fótunum undan Curtis Jones. En eftir skoðun í sjónvarpi var hætt við vítið. Voru Rauðliðar ekki sáttir við þá ákvörðun. Cole Palmer var ekki fjarri því að jafna í lok viðbótartímans sem lengdist nokkuð vegna sjónvarpdómgæslunnar. En Skot Clole rétt innan við vítateigslínuna fór rétt yfir. Liverpool yfir í hálfleik.

Gestirnir fengu óskabyrjun í síðari hálfleik. Eftir þrjár mínútur fékk Nicolas Jackson sendingu fram. Hann komst inn í vítateiginn og skoraði framhjá Caoimhin. Línuvörður gaf merki um rangstöðu. En eftir drjúglanga skoðun í sjónvarpinu var markið dæmt gilt. 

En leikmenn Liverpool létu þetta ekki á sig fá. Eftir miðjuna fékk Mohamed boltann vinstra megin. Hann lyfti svo boltanum inn að markteignum. Þar kom Curtis. Varnarmenn Chelsea sváfu á verðinum og Curtis komst að boltanum. Hann virtist missa boltann frá sér en hann náði að pota honum framhjá Robert í markinu fyrir framan Kop stúkuna. Curtis sýndi þarna mikið harðfylgi. Mjög vel gert hjá honum og eins hjá Liverpool að svara strax eftir að hafa fengið mark á sig!

Það var mikið eftir af hálfleiknum þegar Curtis skoraði. Chelsea átti góðar sóknir en leikmenn Liverpool vörðust vel þegar með þurfti. Í síðustu sókn leiksins átti leikmaður Chelsea skot sem Andrew Robertson komst fyrir og innsiglaði þar með sigur Liverpool!

Sigur í hörkuleik! Leikmenn Liverpool sýndu mikla seiglu og unnu þýðingarmikinn sigur á Chlesea sem spilaði mjög vel. Harðsóttir sigrar eru alltaf sætir.  

Mörk Liverpool: Mohamed Salah, víti, (29. mín.) og Curtis Jones (51. mín.).

Gul spjöld: Dominik Szoboszlai, Darwin Núnez, Ibrahima Konaté og Alexis Mac Allister.

Mark Chelsea: Nicolas Jackson (48. mín.).

Gul spjöld: Tosin Adarabioyo, Nicolas Jackson og Renato Veiga.

Áhorfendur á Anfield Road: 60.277.

Maður leiksins: Curtis Jones. Nýi faðirinn var mjög góður. Hann fékk tvær vítaspyrnur. Reyndar bara eina sem stóð. Hann skoraði svo sigurmarkið. Sannarlega gott dagsverk!

Fróðleikur

- Mohamed Salah skoraði sjöunda mark sitt á keppnistímabilinu.

- Curtis Jones opnaði markareikning sinn á leiktíðinni. 

- Curtis skoraði aðeins 76 sekúndum eftir að leikur hófst eftir að miðja var tekin í kjölfar jöfnunarmarks Chelsea.

- Liverpool hefur ekki tapað í síðustu tíu leikjum við Chelsea í öllum keppnum. 

- Arne Slot er fyrstur framkvæmdastjóra Liverpool til að vinna sigur í tíu af fyrstu 11 leikjum sínum við stjórn.

- Ibrahima Konaté spilaði í 100. sinn fyrir hönd Liverpool. 

- Caoimhin Kelleher lék sinn 50. leik með Liverpool. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan