| Sf. Gutt
TIL BAKA
Tilboðum hafnað
Eins og allir vita hefur Liverpool ekki keypt neinn leikmann hingað til. En það hafa komið tilboð í leikmenn Liverpool sem hefur verið hafnað. Um er að ræða tvo leikmenn.
Í fyrsta lagi bauð franska liðið Marseille í Wataro Endo. Hermt er að tilboðið hafi verið 16 milljónir sterlingspunda en Liverpool keypti hann frá Stuttgart fyrir ári á þá upphæð. Tilboðinu var hafnað og mun Japaninn ekki vera falur.
Í annan stað var boði Hollandsmeistara PSV Eindhoven í Sepp van den Berg hafnað. Tilboðið var um átta milljónir punda. Liverpool keypti hann 2020 frá Zwolle 1,3 milljónir en sú upphæð gat farið upp í rúmar fjórar milljónir. Sepp er búinn að spila mjög vel á undirbúningstímabilinu. Hugsanlega vill Liverpool selja hann og hefur verið nefnt í fjölmiðlum að tilboði upp á 20 milljónir yrði kannski tekið.
Aðrir leikmenn Liverpool hafa ekki verið orðaðir við brottför. Að minnsta kosti ekki alvarlega.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Alvaro Arbeloa á Anfield! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Tilkynnt um nýjan aðalstyrktaraðila! -
| Sf. Gutt
Reyni að gera mitt allra besta alla daga! -
| Sf. Gutt
Liverpool kaupir ungan franskan framherja! -
| Sf. Gutt
Richard Hughes lætur af störfum -
| Sf. Gutt
Alisson kominn upp í fjórða sæti! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Nýr varafyrirliði -
| Grétar Magnússon
Gluggadagur - hvað er títt?
Fréttageymslan