| Sf. Gutt
TIL BAKA
Tveir komnir í ný lið
Átta ungliðar yfirgáfu Liverpool fyrr í sumar. Tveir af þeim eru komnir með samninga við ný lið sem er auðvitað mjög gleðilegt fyrir þá.
Adam Lewis er kominn til Morecombe en liðið spilar í fjórðu efstu deild. Adam fæddist í Liverpool var hjá Liverpool frá því hann var strákur. Hann spilaði einn leik með aðalliði Liverpool. Adam hefur leikið með yngri landsliðum Englands.
Melkamu Frauendorf fékk samning hjá þýska liðinu Hannover 96 í heimalandi sínu. Hann kom til Liverpool frá Hoffenheim sumarið 2020. Þjóðverjinn lék tvo leiki með aðalliði Liverpool.
Þeir félagar fóru báðir á frjálsri sölu. Það verður áhugavert að sjá hvernig þeim Adam og Melkamu gengur hjá þessum nýju liðum.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Gleðileg jól! -
| Heimir Eyvindarson
Stjórnaðu spurningakeppni um Liverpool -
| Sf. Gutt
Alexander Isak frá næstu mánuði -
| Sf. Gutt
Jeremie Frimpong búinn að ná sér -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk í úrvalslið í fimmta sinn! -
| Sf. Gutt
Dómur upp kveðinn -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Mohamed fer til Marokkó -
| Sf. Gutt
Engin vandamál! -
| Sf. Gutt
Cody Gakpo meiddur
Fréttageymslan