| Sf. Gutt

Niðurtalning - 2. kapítuli


Áfram heldur niðurtalningin og nú verða helstu afrek og met Liverpool í keppninni rakin. Af mörgu er að taka!

+ Liverpool hefur oftast allra félaga unnið Deildarbikarinn eða níu sinnum. 

+ Liverpool hefur 19 sinnum spilað í undanúrslitum keppninnar. Tottenham hefur jafn oft leikið í undanúrslitum.

+ Liverpool er í úrslitum í 14. sinn. Það er met! 

+ Liverpool vann keppnina 1981, 1982, 1983, 1984, 1995, 2001, 2003, 2012 og 2022. 

+ Liverpool varð fyrsta liðið á Englandi sem náði að vinna stórtitil fjögur ár í röð eins og liðið gerði í Deildarbikarnum á árunum 1981 til 1984. Manchester City jafnaði þetta afrek frá 2018 til 2021.


+ Liverpool varð fyrsta liðið til að vinna stórtitil á Englandi eftir vítaspyrnukeppni. Liverpool lagði Birmingham City 5:4 í vítaspyrnukeppni í úrslitum Deildarbikarins 2001. 

+ Þrír leikjahæstu leikmenn Liverpool í Deildarbikarnum eru þeir Ian Rush 78 leikir, Bruce Grobbelaar 70 leikir og Alan Hansen 68 leikir. 

+ Þrír markahæstu leikmenn Liverpool í Deildarbikarnum eru þeir Ian Rush 48 mörk, Robbie Fowler 29 mörk og Kenny Dalglish 27 mörk. 

+ Ian Rush hefur alls skorað 49 mörk í Deildarbikarnum sem er landsmet.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan