| Sf. Gutt

Af stórkeppnum


Japan með Wataru Endo sem fyrirliða er úr Ásíukeppninni. Japanska liðið mætti Írönum í átta liða úrslitum. Japan komst yfir en Íran sneri leiknum sér í vil og vann 2:1 með sigurmarki í viðbótartíma. Wataru spilaði allan leikinn. 

Þetta var heldur óvænt en búist var við að Japan væri eitt af sterkustu liðum keppninnar. Wataru getur því snúið heim til Liverpool.

Eins og áður hefur komið fram er Mohamed Salah kominn heim til Liverpool eftir að hafa meiðst á Afríkumótinu. Egyptaland er reyndar úr leik eins og Japan.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan