| Sf. Gutt

Erfitt verkefni!



Í dag var dregið til þriðju umferðar FA bikarsins. Liverpool fékk óhemju erfitt verkefni. Kannski það næst erfiðasta sem hægt var að fá.

Liverpool fékk útileik við Arsenal sem núna leiðir Úrvalsdeildina. Eini leikurinn sem hefði getað verið erfiðari hefði verið útileikur við Manchester City!



Sem fyrr segir verður verkefnið óhemju erfitt. En fari svo vel að Liverpool nái að slá Arsenal út er eitt af bestu liðunum þar með úr leik! Leikurinn á Emirates leikvanginum fer fram í byrjun nýs árs.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan