| Sf. Gutt

Ófyrirgefanlegt!


Jamie Carragher var ekki, frekar en öðrum stuðningsmönnum Liverpool, skemmt eftir tap Liverpool á móti Manchester United. Leikmenn Liverpool voru mjög daufir á upphafskafla leiksins og á þeim tíma komust heimamenn yfir. Það var einfaldlega eins og leikmenn Liverpool væru ekki tilbúnir í leikinn og Jamie segir það ófyrirgefanlegt! ,,Liverpool var ekki tilbúið í grannaslag. Það er ófyrirgefanlegt!"


Það þurfti aldrei að efast um að Jamie Carragher var tilbúinn frá fyrstu mínútu í þeim 737 leikjum sem hann spilaði fyrir Liverpool. Það þurfti ekki grannaslagi til! 


Alltof margir leikmenn Liverpool voru fjarri sínu besta og alltof margir leikmenn Liverpool eru meiddir. En þeir sem spiluðu á Old Trafford eiga að geta spilað mun betur!

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan