| SSteinn

Babbel byrjaður í léttum æfingum

Það eru mikil gleiðitíðindi að Markus Babbel er farinn að geta stundað léttar æfingar eftir gríðarlega erfið veikindi. Babbel hefur misst 16 kíló og er ekki svipur hjá sjón. Hann hefur verið frá æfingum og keppni frá því í ágúst. Talsmaður endurhæfingarmiðstöðvarinnar sem hann hefur dvalið á hafði þetta að segja um stöðu mála hjá Babbel:

"Markus og fjölskylda hans hafa sýnt mikið hugrekki og ákveðni í viðureign sinni við þennan erfiða vírus. Meðferðin hefur skilað sér í góðum útkomum á alls konar prófunum á honum. Markus þarf ekki að dvelja lengur hjá okkur og hann er farinn að geta gengið á nýjan leik. Hann hefur meira að segja náð að gera léttar æfingar með bolta og hefur komið í ljós að jafnvægisskyn hans er sífellt að batna."

Þetta eru hreint út sagt frábærar fréttir og vonandi fáum við að sjá hann í góðu formi á næsta tímabili.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan