| Sf. Gutt

Jeremie Frimpong búinn að semja

Jeremie Frimpong er búinn að semja við Liverpool. Hollenski landsliðsmaðurinn kemur frá þýska liðinu Bayer Leverkusen. Liverpool borgar 29,5 milljónir sterlingspunda fyrir Jeremie sem leikur jafnan sem hægri bakvörður eða á kantinum. Hann er eldfljótur og áræðinn.

Jeremie Frimpong er 24 ára en verður 25 ára 10. desember. Hann fæddist í Amsterdam í Hollandi en fjölskylda hans, sem á rætur að rekja til Gana, fluttist til Englands þegar hann var sjö ára. Þegar hann var níu ára hóf hann að æfa með Manchester City. Hann lék aldrei með aðalliði félagsins. Haustið 2019 gekk Jeremie til liðs við Celtic. Hann vann deild, bikar og Deildarbikar á leiktíðinni 2019/20.

Jeremie lék með Celtic fram í janúar 2021 en þá fór hann til Bayer Leverkusen. Hann var lykilmaður í hinu ósigrandi liði Bayer sem vann Tvennu í Þýskalandi á síðasta keppnistímabili. Hann var líka Stórbikar Þýskalands í fyrra. Jeremie var valinn í lið deildarinnar fyrir leiktíðarinnar 2022/23 og 2023/24.

Jeremie Frimpong ákvað að leika með hollenska landsliðinu en hann hefði líka getað leikið með Gana og Englandi. Hann er búinn að spila 12 landsleiki og skora eitt mark. 

Hollenski landsliðsmaðurinn er auðvitað ánægður með að vera kominn til Liverpool. ,,Samningsferlið gekk vel fyrir sig. Forráðamenn Livepool sýndu áhuga og ég þurfti ekki að hugsa mig um. Ég sagði við umboðsmenn mína að koma málinu í höfn sem allra fyrst."

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan